3 gerđir karlmanna....
NR1 : Ríkatýpan... Hann á skít nóg af peningum... Hellir yfir ykkur allskyns gjöfum.. Skartgripir, bílar, býður ykkur út á bestu staðina, utanlandsferðir og allt sem ykkur óskar... En hann er player, Þegar þið eruð ekki nálægt þá er hann með flotta brjóstgóða blondínu á Hilton hótelinu og fer reglulega þangað á " fund " með aðalsmönnunum í fyrirtækinu...
NR2: Verkamaðurinn.. Hann er í góðri vinnu og vinnur mikið... Þið rétt fáið að sjá hann yfir kvöldmata tímann. Svo er lagst upp í sófa horft á fréttirnar og sofnað.. Dröslið honum svo upp í svefnherbergi rétt fyrir kl 11 á kvöldin svo er sama rútínan daginn eftir.. Þið fáið sæmilega athygli.. Einn koss á morgnana rétt áður en hann fer í vinnu og koss fyrir matinn sem þið elduðuð ofan í han um kvöldið... Hann hefur aðeins orku til að stunda kynlíf einn sunnudag í mánuði. Þið eigið hús, bíl og eruð ekki vaðandi í skuldum.. Getið ekki leyft ykkur hvað sem er en gætuð kannski farið smá helgarreisu einu sinni í á 6 mánaða fresti. Skítsæmilegt líf bara...
NR3: Nördinn.. Ekki hátekjumaður... Vinnur sem pizzusendill á kvöldinn en eyðir deginum að hanga í World of warcraft á pc og spilar Halo í ps3 á sama tíma.. Spjallar við vini sína í gegnum bluetooth á netinu um plöttið í Lord of the rings myndunum... Hann er þér trúr og elskar skilyrðislaust.. Færð alla þá ást sem þú þarft og finnst þú eiga skilið... Kynlífið er frábært.. Lítill ræfilslegur og á það til að spretta bólur hér og þar á líkamanum...
Svo spyr ég ykkur... Hver þessara manna yrði ykkur fyrst fyrir valinu???
Draumaráđning
Úr ráðningunni fékk ég þetta..
Ég mun erfa fasteignir, giftast til fjár og ástin mun blómstra.. Má búast við sjóslysafréttum eða lenda sjálf í sjóslysi.. Mun gifta mig á næstu árum og mikil hamingja mun fylgja mér.. Mun ná góðum árangri í framtíðinni sem og vera mjög hraust líkamlega og mundi sæma mig vel í einhverjum íþróttum.. haha...
Ekki get ég sagt það að ég sé með það markmið að giftast einhverjum peningana vegna.. En ástin er að blómstra hjá mér og Sigurði að ég held..
... Ég vona að ég nái góðum árangri í framtíðinni.. Ég er nú að fara að mennta mig...
Hvort að ég eigi eftir að gifta mig á næstu árum veit ég nú ekki alveg.. Nema að Sigurður fari á skeljarnar.. Kemur í ljós hehe.... Líkamlega hreystið ja.. Held að ég þurfi að kýla á ræktina til að það rætist hehe...
Ég vona að ég þurfi ekki að heyra af neinu sjóslysi... Sigurður er á sjó núna... Held ég myndi tapa mér ef hann færi frá mér
... En það er gaman að ráða svona drauma... Sumt nefnilega á það til að rætast
Smá gleđi og smá sorg...
.. Við keyrðum svo um allt suðurnesið og reykjanesið... Fórum yfir brúnna sem skilur að Evrópu og Ameríku.. Ég get þá stolt sagt að ég sé búin að vera á báðum heimsálfunum í einu.. Pælið í því
.. Kíktum á Garðskagann í þvílíkri blíðu og gengum bara nokkrar tröppur upp í vitann þarna.. Það var púl.. few!!!!!! hehehe.. En það var anski skemmtilegt safn þarna sem gaman var að skoða.. Mæli líka með því að þið farið þangað... Við lukum ferðinni með að fara í bláa lónið sem var bara næs og kósý... Ég ætla ekkert að vera að skrifa öll nánustu smáatriði hérna.. Bara svona það helsta.. En annars er smá, pínu, pjónku pirringur í manni núna... Þannig er málið að hann Subbi minn er á verkstæði og er búinn að vera þar í mánuð... Illa gengur að fá tölvu fyrir þessa elsku til að greina hvað er að.. Margsinnis er búið að hringja, kvarta og kveina í þessum mönnum til að fá þessa helv***s tölvu en ekkert gengur.. Ég var rétt í þessu að bjalla í Ingvar Helgason og nota tíkina í mér að kvarta.. Ég er orðin nett pirruð á þessu.. Ekkert gaman að vera að borga af bíl sem maður getur svo ekkert notað...
... Svo eru pínu stælar í Ferozunni.. Fór með hann reyndar í gær og ætlaði að láta strekkja á viftureiminni.. En hún er barasta ónýt... En ég fékk rétt mál á reiminni til að geta pantað.. En viti menn.. Hékk í hálftíma í símanum hjá N1 en fékk ekkert svar.. Alveg til að ýta undir pirrinnginn... Oh jæja.. Þetta hlýtur að reddast á endanum... Einn brandari svo í lokin til að lífga upp á daginn 
Dag einn, stuttu eftir fæðingu níunda barnsins síns, kemur kona nokkur til sóknarprestsins að panta skírn.
Hann óskar henni til hamingju með nýja barnið en segir svo: “Jæja, er þetta ekki orðið ágætt? Þú ætlar ekkert að eignast fleiri börn í bili er það?”
“Ætli það,” segir hún og af því að hún er að tala við prest, þá talar hún aðeins undir rós og segir: “Ég veit ekki af hverju ég verð ólétt svona oft. Það hlýtur að vera eitthvað í loftinu bara.
“Já,” segir presturinn, “fótleggirnir á þér!”
Draumar
. Það sem ég er búin að velta fyrir mér núna undanfarið eru stress tengdir draumar.. Eins og flestir vita er lífið ekki búið að vera mér auðvelt núna undanfarið og í fylgd með því er mér búið að dreyma hinu furðulegustu hluti sem og skelfilega.. Ekki fyrir svo löngu dreymir mig það að ég og faðir minn erum á göngu um kirkjugarð nema það var í fossvoginum af einhverjum ástæðum. Við stöldrum við hjá litlu sætu leiði sem þakið var blómum og bleikum borðum.. Þegar ég lít á legsteininn þá blasir við mér nafnið á Amelíu.. Ég lít á föður minn og segi við hann að ég vilji ekki vera hér.. Vakna svo í svita kasti og með hjartað á milljón... Jesús minn hvað mér leið illa...
. En eins og ég segi þá var þetta alveg stress tengdur draumur.. Þar sem að mikið hefur gengið á hér á bæ og alveg skiljanlegt að mér skuli dreyma svona.. Mig hefur reyndar áður dreymt álíka draum en það var áður en allt þetta sem hefur verið í gangi kom uppá.. Held að það hafi nú bara verið út af venjulegum móðurlegum áhyggjum.. Semsagt draumurinn fólst í því að litla skottan var úti að leika sér og hún hleypur út á götu og það er keyrt á hana.. Hún kastast einhverja leið frá bílnum og ég hleyp út, held henni í fanginu á mér og öskra... Ég vaknaði líka öskrandi.. Ég er líka svo illilega ósátt við aksturslagið á bílunum hérna í hverfinu.. Það er ekkert verið að hugsa út í það hvort börn séu hér að leik.. Ég vil annaðhvort fá hraðahindrun hérna í götuna eða minnka hámarkshraðann.. Líkt og er búið að gera hérna á Ásaveginum.. Þar máttu ekki aka hraðar en á 30km hraða.. Þetta ætti að vera í öllum hverfum hérna.. Þetta er ekki aðalbraut.. 50km hraði finnst mér of hátt í hverfum slík sem þessum þar sem börn eru að leika sér úti.. Auðvitað er ég með stanslausar áhyggjur af barninu mínu.. Það er bara eðlilegt fyrir móður... En ég reyni að passa mig að ofvernda hana ekki..
Annað sem er í fréttum.. Ja ég er öll að koma til andlega megin.. Fæ mikla hjálp frá fjölskyldu og vinum.. Svo og bara af bæjarfólki.. Allir hafa sýnt svo góðan stuðning og er ég mjög þakklát fyrir það.. Þótt að mér finnist stundum pískrið og umtalið óþægilegt þá veit ég að þetta er allt á jákvæða veginum... Maður datt aldrei í hug hvað fólk er virkilega yndislegt hérna heima.. Takk allir fyrir stuðningin.. Við fjölskyldan metum þess mikils... Amelía er hress og kát og er bara eins og hún á að vera.. 5 ára grallari sem skítur sig út og gerir prakkarastrik.. Alveg eins og hún á að vera
.. En jæja.. segjum þetta gott í bili elskurnar...Vil þakka ykkur öllum enn og aftur fyrir stuðninginn.. Við erum svo þakklát að eiga ykkur öll að...
bæ bæ
the past is the past...
speki dagsins
Bið að heilsa í bili...
chiao...
Bara eitthvađ...
Allar götur síðan eyði ég deginum
með þig á heilanum.
En ég var að koma með smá uppástungu... Ég er að spá í að gerast bara leigukærasta... Þar sem að mín sambönd endast aldrei lengur en í 2-3 mánuði þá hef ég ákveðið að leigja mér út sem kærustu.... Það er hægt að taka helgar leigur og viku leigur.. En ef leigan fer að 3 mánuði þá fellur hann sjálfkrafa úr gildi og það er ekki hægt að framlengja samningnum...
.. Maður verður að græða í leiðinni í þessari kreppu hérna....Langaði bara aðeins að láta heyra í mér...
See ya babies...
Jólin eru sorgardagur trjánna...
jæja en einn brandari svona til að gleðja ykkur...
Hjón nokkur voru á jólahlaðborði.. Konan fékk sér vel að borða og var komin á 3 disk þegar maðurinn hennar segir: " þú endar eins og heybindivél ef þú heldur áfram að éta svona kona " Þegar hjónin komu heim og búin að koma sér vel fyrir fyrir svefninn reynir maðurinn að hjúfra sig upp að konunni í von um góðar stundir þá snýr konan sér að manninum og segir: " Maður fer ekki að setja heila heybindivél í gang fyrir eitt lítið strá "

Ég óska ykkur gleðilegra jóla og sjáumst hress og kát á nýju ári...
Smá fréttir frá undirheimum
Ætlaði bara að koma með smá fréttir af beyglunni.. Allt gott að frétta svo sem.. Nema af þessari blessaðri síld.. Hún byrjaði vel... Ég var svo glöð að geta farið að vinna mikið og svitna á öðrum stað heldur en í svefnherberginu
.. En blessunin fékk einhverja veiru... Þeir sem neðansjávar lifa getað visst fengið pestir líkt og við hér sem lifum hér ofan jarðar... Þannig að svitinn verður bara að dembast í svefnherberginu í bili.. Ekki það að ég kvarti eitthvað yfir því hahahaha
... Blessuð jólin eru nú að nálgast og maður er að vinna í því.. Ekki það skemmtilegasta sem ég geri en maður neyðist visst til að gera suma hluti... Er að verða búin með jólagjafirnar... Fór í bæinn síðustu helgi og verslaði alveg helling þar... Ásamt því að eyða góðum tíma með manninum mínum... Sem er náttla eitt það notalegasta sem maður getur gert... Og ég kyssti jólasvein í Kringlunni og sagði svo við Amelíu að núna gætu hún svo sannarlega sungið " Ég sá mömmu kyssa jólasvein " hehehe
Jæja... þetta var nú bara það helsta í bili....ta ta!!!
Framtíđar búseta
Ég þakka fyrir lesturinn...
bæó
úti er alltaf ađ snjóa...
Bara fegin að vera ekki ennþá á sardínudósinni sem ég var á.. hún myndi bara festa sig... En jæja.. ætlaði bara aðeins að tjá mig um þetta... Ég og Amelía verðum upp á Skaga um helgina hjá Benna mínum... Segi ykkur fréttir þegar ég kem heim... see ya..
P.S. ÞAÐ ER KOMIN VETUR!!!!!!!!!
viljiđi fréttir??
... Ég meina ég er æðisleg og frábær, hann ógeðslega fallegur.. Börnin okkar yrðu fullkomin...
.. Ég fór með drullukoppinum á föstd... í þvílíku aftakaveðri... Og ekki nóg með það.. Hann var seinn, Það var einhver unglinga andskoti með laptop tölvu með sér í kojunni að spila tónlist, fólk ælandi í kringum mig... Enda þegar við komum í þorlákshöfn þá spólaði ég út úr dallinum var svo fokking helvítis PIRRUÐ!!!!!!!..
. En jæja... Ég ætlaði að stoppa við að kaupa mér eitthvað að éta en mér lá svo á að hitta Benna minn að ég gaf mér ekki tíma í það þannig að ég keyrði bara beint upp á Skaga... Drullu pirruð, þreytt, svöng og með hausverk dauðans mæti ég til Benna og ég svo dregin út að hitta félaga hans.. Náttla hann verður að monta sig á gripnum
.. Smá ölsötur þar og svo kíkt á eina skemmtistaðinn í bænum Mörkina... Sem lokar kl 3... Stærri bær.. 1 pöbb og lokar snemma.. Við höfum það bara gott hér á eyjunni.. Ég var tekin bara með opnum örmum af vinum hans bara eins og ég væri búin að þekkja þau í ára raðir.. knúsuð og kysst og veit ekki hvaðeina... hafði bara gaman af því... Ég og Benni fórum svo bara heim um lokun segi ekki hvað gerðist þá hahaha... Maður vaknaði með pínu þynnku í sér daginn eftir eða um hádegi... En ég sofnaði líka aftur og svaf alveg til hálf sex eða eitthvað.... ég fór svo út og keypti pizzu handa Benna og sveittann hammara handa mér... Ég er svo góð... Hvað gerir maður ekki fyrir elskuna sína
Jæja en það var farið aftur út um kvöldið til sama félagans.. Nema að Benni þurfti að fara á sjó kl 3 um nóttina þannig að hann fór úr partýinu uppúr miðnætti að sofa smá en ég varð eftir að halda áfram að tjútta.. enda fékk ég bara ekkert að fara.. Svona er það að vera svona æðisleg..
Það var farið aftur á Mörkina.. Rassinn hristur til og frá.. Hitti svo Aldísi systir hans Hrólfs fyrrverandi... Það var reynt að draga mig upp í rútu í eitthvað partý.. Ég afþakkaði bara gott boð en þegar pöbbinn lokaði þá fórum við skarinn í partý rétt hjá... Þar lenti ég í því að ég var að spjalla við einhvern strák í eldhúsinu og hann kyssir mig svo bara og þá hugsaði ég með mér " shit nú fær Benni að heyra það að ég var að kyssa einhvern strák" Jæja en ég sagði honum að ég væri á föstu og þá fær hann svona nett sjokk og er hann hér?.. nei segi ég... þá segir hann að allt sé í lagi.. Ég bara dísus er ekki í lagi... En jæja.. það var farið í annað partý og þessi sami drengur elti mig þangað.. Allt í lagi ég líka notaði hann sem burðardýr muahahahaha
Ég og ein önnur sem labbaði með mér duttum og sködduðumst á kné en fengum svo góðan lækni sem hjúkraði okkur þegar á leiðarenda var komið.. En ég var nú samt ekki lengi þarna og ákvað að skundast heim bara... En klukkan var líka orðin 6 um morgunin
.. Langt síðan að maður hefur haldið sig svona lengi úti á djammi... vakna klukkan 4 þunn eins og andskotinn sjálfur... oj oj oj... og þurfti að fara að keyra alla leið í þorló.. sem var by the way frekar erfitt.. en það tókst áfallalaust... Sofnaði svo bara í herjólfi og varla náði að vakna þegar við vorum komin að eyjunni... Vaknaði ekki við kallið.. Vaknaði þegar það var kveikt á ljósunum... En jæja... þið vitið nú svona nokk hvernig helgin fór hjá mér... Ætla ekkert að hafa þetta neitt lengra...bið að heilsa í bili...
Gunnar Jóhannsson F: 31 maí 1931 - D: 7 sept 2008
Til Afa
Marga sæluna minnist af þér
allt þetta góða sem gefið hefur mér.
Áran svo skær rétt eins og þú
sem fyllti upp lífið en því er lokið nú.
Þú og amma saman eruð á ný
þið hönd í hönd haldið í.
Ég bið þér að heilsa,annað get ei gert
vona að lífið á himnum sé yndislegt.
Þín dótturdóttir Elva Dögg.
Árinu eldri!!!
Ég var hérna að setjast niður bara... Er búin að vera að baka og útbúa girnó kræsingar sem ég ætla að bjóða fjölskyldunni minni í vinnunni uppá... Maður verður víst að gefa þessum dýrum að éta... Ekki búið að tala um annað síðan maður mætti í vinnu á mánudaginn... Fyndist að þau ættu nú frekar að dekra við mig en ekki ég að púla og leka af svita fyrir þau... iss.. þvílíkt ranglæti.. jæja... ég eiginlega nenni þessu ekki.. langaði bara að láta vita aðeins af mér...se ya
mönuđ í blogg...
NR1: hafið þið nokkuð hugsað út í það hvað salernispappírs framleiðendur græða mikið á bjór drykkju manna... Þar sem að maður þarf ansi mikið að kasta af sér þvagi þegar maður er búinn með nokkra öllara.. Jafnframt var ég farin að spekúlera í því hvort pappírs framleiðendurnir styrki ekki bara verksmiðjurnar.. Jafnvel eiga nokkrar sjálfir... Spurning... Sé alveg fyrir mér Andrex Lager 5%.. Og slagorðið yrði.. " As soft as Andrex wc paper "

Nr2: Nú er farið að framleiða bíla sem ganga fyrir metan gasi.. En afhverju ættum við að borga fyrir eitthvað sem við getum framleitt sjálf.. Þess vegna hef ég stungið upp á því að útbúa búnað í bílum sem felst í því að í bílstjóra sætinu liggur rör sem þú sest á þar sem þú getur leyst vind til að virkja ökutækið þitt.. En þetta telur í för með sér líka breyttu mataræði þar sem Baunir, söl og rúgbrauð verði aðalega á matseðli landsmanna... Versta við þetta allt saman að lyktin í umhverfinu yrði ekki svo sérlega smekkleg en það er lyktin af diese oliu ekki heldur.. svo að maður sér nokkurnveginn allt jákvætt í þessu.. Felur í sér mikinn sparnað en kannski ekki mikla þef ánægju
Ţjóđhátíđ afstađin og ég mćtti ekki muahahahahaha
.. Mér gekk ekkert eitthvað prýðilega vel.. Enda var ég nú ekkert í keppnisskapi... Hefði verið annað hefðum ég og Egill verið ein að keppast hehehe
Þegar við vorum búin með okkar mínútur.. þá fórum ég og Egill í þythokkí... Þar var smá keppni í gangi.. Enda endaði þetta yfirleitt alltaf í jafntefli þar til í lokin þegar tíminn var útrunninn þá skoraði Egill einu yfir svo þetta endaði í 7-6 fyrir Agli.. Og ég og Amelía fórum í einhvern dansleik sem ég botnaði ekkert í og hann stóð alveg í 3 sek.. Waste of money.... Þegar því var lokið ákváðum við að kíkja til Steina félaga hans Egils.. Sem býr í vogum og býr til voga ídýfur hahaha
Spjölluðumst og fengum okkur kaffi og sonna bara og svo var farið aftur í kef.. Þar sem bjórinn var opnaður og gott betur en það... Fórum með heilan 5 lítra kút... Svo var Egill svo góður að vera heima að hlusta eftir dömunum og við liðið kíktum aðeins út á lífið.. Sem maður betur hefði átt að sleppa þar sem að ég kom heim með skaddað hné og lemstraðan olnboga... jeij
Og maður var líka vel þunnur á sunnd... samt vaknaði ég frekar snemma miðað við hvenær maður fór að sofa.. Ætli maður hafi ekki sofnað svona um 9 um morgunin og svo fór ég á lappir um 11 leytið eða svo.. Sunnudagurinn fór fyrir ekki nema í leti upp í sófa... svo það er ekki mikið um að ræða um þann dag... Á mánd.. þurfti maður að vakna frekar snemma því ég þurfti að skutla Agli niður á BSÍ því hann þurfti að taka rútuna niður í Þorló því hann var að fara með jólfi því hann þurfti að fara á sjó kl 8 um kveldið.. Svo fór ég bara beint aftur i kef... Og ég og Karen tókum upp Guitar Hero sem ég er bythe way orðin húkkt á... Og er orðin algjör snilli í
.. Ætla pottþétt að kaupa mér svona græju.. Þetta er bara gaman.. Vorum líka í allan mánudaginn í þessum leik
... gærdagurinn var bara chill... Þar sem að ég var að fara með seinni ferðinni... Við sleiktum bara sólina og notuðum góða veðrið' sem var... Svo var bara farið með jólfi heim um kveldið.. Þetta var fín ferð og svo gott að geta verið með Kareni svona þar sem að við hittumst frekar sjaldan... En svona var þessi ferð.. ætla nú að hætta að skrifa.. Þetta er líka komið alveg nógchiao..
Fréttir frá undirheimum
Ég er alveg hætt að spá í þessum uppnefningum.. Ég er búin að fá ágætan slatta af því.. Meira að segja var veðmál í gangi um borð hjá Agli um hvort eftir goslokahelgina hvort han mundi eiga kærustu eða óvin... hahahahahaha
Ekki nóg með það þá var einn skipsfélagi hans búin að greina mig sem dópista... Já já.. er svakalegur eiturlyfjaneytandi... Tek alveg 1 verkjatöflu á mánuði... SJÚKT!!!!! Verð að fara að drífa mig í meðferð út af þessu... Já svo á ég í miklum áfengisvanda líka... Fer eiginlega aldrei út... Er meira að segja að fara að beila á Þjóðhátíðinni... Talaði við Gunnar í dag um að skipta á helgum því það hitti á pabbahelgi á Þjóðhátíðinni.. Ætla þá að taka skottuna með mér í bæin þá helgi og gera eitthvað skemmtilegt með henni... Djamm áhuginn hjá mér er orðin nánast enginn... Líka svo fyndið með sumt þetta fólk sem þarf að úthúða mig svona.. Flest af því hefur ekki einu sinni efni á því sjálft.. Þessi sem kallar mig dópista er svo langt frá því að vera engill að hálfa væri meiri en hellingur... Margt sem han er búinn að vera að segja um mig sem hann ætti bara að taka til sín sjálfur... Hann lýgur svo mikið en er ekki að fatta að lygin er í raun sannleikurinn um hann sjálfann... Jæja nenni ekki að fara út í þetta meir... En í gærmorgun kom spegillinn minn í land... Og mætti ég honum þegar ég var á leið í vinnu.. Hann tók við fokkusinum en sótti mig svo þegar ég var búin í vinnu þessi elska.. Fórum út í búð að kaupa í matinn.. Maður þarf visst að gefa þessu að éta... ætlaði að elda lasagne handa honum en ákvað að gera eitthvað sem hann hefur aldrei smakkað áður.. sem var ritz kex bollur nema það var ekki til ritz kex svo þetta urðu club kex bollur... Svo gerði ég langþráðan súkkulaðibúðing handa honum með rjóma honum til mikillar gleði þar sem að kokkurinn um borð hjá honum er ekkert að standa sig í þessum málum
.. Svo átti kjallinn að fara að sjóast á miðnætti í gær... En dallurinn fór ekki lengra en svo en upp að vitanum á Skansinum... Hahahaha... Þannig að Egill kom aftur heim í kúr til mín.. Voða notó.. Tölvan sem heldur vélinni gangandi dó bara og lóðsinn þurfti að draga þá til baka.. Svo fór hann kl 13:30 í dag... eeeeennnn... Hvað gerist þá.. Krapavélinn bilar og þeir þurfa enn einu sinni að koma í land í viðgerð... Þetta er bara búið að vera skrautlegt hjá þeim þarna.. Á bara að henda þessum dalli í brotajárn áður en eitthvað virkilega alvarlegt gerist... Jæja en ég er komin á ástina mína aftur (bílinn minn) mér til mikillar ánægju.. Fékk aukalykilinn af honum áðan.. Sem betur fer.. ætla að láta þetta gott heita núna
sé ykkur síðar...
p.s. Kíkja á síðuna hjá Agli
ekki ađ standa mig
Reif kjaft við lögguna... Var einskonar hjónabandsráðgjafi..
Og týndi svo lyklunum mínum af bílnum og íbúðinni.. ÆÐI!!!!
Hef ekki getað hreyft bílinn minn... Sem er ömurlegt... Ástin mín situr einn og yfirgefinn í innkeyrslunni að drepast úr afbrýðisemi þar sem ég er að halda framhjá honum á öðrum bíl.. Egill var svo góður að leyfa mér að nota bílinn sinn á meðan minn kemst ekki út í umferðina... Samt ótrúlegt að þessir blessuðu lyklar skulu ekki finnast... Mjög áberandi kippa með skrilljón lyklum... UUUURRRGGGGG"!!!!!!!!!!!!! Svo ég ek um á Ford fokkus!!!! nei meina focus hahaha
Fyrirgefðu Egill minn... luv ya
Æj ég veit ekki hvað ég á að segja.. Ég nenni í raun ekki að blogga en það er alveg fullt að segja.. Ég er að sleppa mörgu.. Ég bara er engan veginn að nenna þessu.. Bara smá til að láta vita af mér.. segi bara bless núna...ta ta
Nennti ekki ađ hafa síđuna lćsta

Samt mig langar pínu að orga skom.. Ég þoli ekki þegar það rignir upp í nefið á sumu fólki og hvað þrjóskan er svo innilega upp máluð að hálfa væri nóg... Ekki hægt að bakka aðeins og heilsa manni út á götu.. Kommon... Mætti einni áðan sko.. Sem var eitt sinn vinur en manneskjan ákvað að sparka mér til hliðar vegna smávægilegs glapparskots sem var ekki neitt neitt.. Að mínu mati.. En ég hef þó þá kurteisi að heilsa fólki þrátt fyrir að það sé eitthvað bakk með mann.. Bara þoli ekki svona groddaraskap.. En what ever þá bara verð ég ekkert í því að heilsa henni framar... Goslokahátíð á næsta leyti hérna á eyjunni.. Veit ekki hvað ég geri.. Ætlaði mér að vera með partý hérna en er búin að afkalla það.. Er bara svo áhugalaus núna.. Búið að bjóða mér á Landsmót líka á Hellu og að djammarast með Kareni vinkonu.. Ég bara nenni ekki neinu... Það eiga pottþétt einhverjir eftir að reyna að peppa mig upp í að mæta einhverstaðar en hvort það takist veit ég ekki... Eins og er unni ég mér bara best hérna heima með video og kertaljós eða eitthvað.. Vá ég ætlaði ekki að skrifa of mikið.. Nenni ekki að fara með fréttaskot aftur í tímann því margt leiðinlegt hefur gerst þar á milli sem bara ég nenni ekki að fara út í... Jæja elskurnar þið vitið þó að ég er enn á lífi... Ætla að hætta þessu í bili...
Gangur lífsins
Maður missir vini og eignast vini þannig gengur lífið bara.. stundum eru til skiljanlegar ástæður fyrir því.. Stundum eru ástæðurnar kjánalegar en allir gera mistök.. En það sem fólk verður að fara að átta sig á að það eru alltaf 2 hliðar á öllum sögum og þess vegna á ekki að ráðast bara á aðra hliðina.. Ég hef oft fengið ærlegan skell… Fyrir nokkru missti ég vin af mjög skiljanlegum ástæðum og hef ég fengið minn skammt af skömm yfir því… En af allri virðingu til hans hef ég sætt mig við aðstæður og ákveðið að stroka allar minningar til hans út… En ég var ekki ein í þessu máli sem fólk virðist ekki skilja.. En ég tók þó að mér skammirnar því ég veit ég á þær skilið… Ég hef lært af mistökum mínum og er farin að breyta hugarhætti mínum.. Stundum áttar maður sig bara ekki á hvað gjörðir manns geta sært aðra.. Það er það síðasta sem ég vil gera að særa aðra… Ég á stundum bágt með að loka þverrifunni og segi bara allt sem ég hugsa… En það er að taka breytingum.. Einskonar ritskoðun á hugsunum mínum áður en þau koma niður á blað… Ég er að reyna að breyta lífshætti mínum með bestu getu svo allir geta verið sáttir í kringum mann… Ég vil gera gott fyrir alla.. En stundum verður maður blank og endurtekur mistök sín… Ég verð bara að hafa gott tak á sjálfri mér svo ég fari ekki út á sömu braut…
Segi þeta gott núna..
P.S. hæ hó og jibbý jeij… Það er komin 17júní…
